Icelandic
Birt: 2017-10-10 11:37:01 CEST
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf.: Útboð á víxlum 11. október 2017

Lykill fjármögnun hf. (áður Lýsing hf.) efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 11. október 2017. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki LYKILL180416.

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Tekið er við tilboðum til kl. 16:00 miðvikudaginn 11. október og uppgjör viðskipta fer fram þann 16. október 2017. Tilboðum skal skilað á netfangið markets@arctica.is.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra flokka skuldaskjala eru birt á vefsíðu félagsins, https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s:896 6566
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s:540 1700