Icelandic
Birt: 2017-10-09 11:12:20 CEST
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 40. viku 2017 keyptu Hagar hf. 2.403.963 eigin hluti fyrir kr. 86.722.771 eins og hér segir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Haga eftir viðskipti
3.10.2017 15:59 4.775 35,00 167.125 33.004.022
4.10.2017 11:02 500.000 36,10 18.050.000 33.504.022
4.10.2017 11:02 449.594 36,10 16.230.343 33.953.616
5.10.2017 09:43 500.000 36,20 18.100.000 34.453.616
5.10.2017 09:43 449.594 36,20 16.275.303 34.903.210
6.10.2017 09:51 500.000 35,80 17.900.000 35.403.210
Samtals   2.403.963   86.722.771  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 14. ágúst 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 11. ágúst 2017.

Hagar hafa nú keypt samtals 16.234.861 hluti í félaginu sem samsvarar 64,9% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 578.774.891 sem samsvarar 57,9% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 35.403.210 eigin hluti, eða 3,02% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.171.502.190.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 25.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.000 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 6. júní 2018 eða fram að aðalfundi félagsins 2018, nema ef skilyrði um hámarkskaup verða uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.