Lýsing hf. lýkur skuldabréfaútboði Lýsing hf. hefur lokið skuldabréfaútboði í skuldabréfaflokkunum LYSING 16 1 og LYSING 17 1. Alls bárust tilboð að nafnvirði 1.530 m.kr. Alls bárust tilboð upp á 180 m.kr. að nafnvirði í óverðtryggða flokkinn LYSING 16 1 og var öllum tilboðum tekið á hreina verðinu 100,00. Heildarstærð flokksins eftir útboðið er 3.200.000.000 kr. að nafnvirði. Alls bárust tilboð upp á 1.350 m.kr. að nafnvirði í verðtryggða flokkinn LYSING 17 1 og var öllum tilboðum tekið á hreina verðinu 100,32 sem samsvarar 3,85% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins eftir útboðið er 4.810.000.000 kr. að nafnvirði. LYSING 16 1 og LYSING 17 1 eru skuldabréfaflokkar sem tryggðir eru með veði í útlánum og fjármögnunarsamningum Lýsingar. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er miðvikudagur 11. október 2017. Óskað verður eftir því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann dag. Markaðsviðskipti Arctica Finance höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna. Nánari upplýsingar veita: Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s: 840 4145 Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s: 896 6566 Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lýsingar hf., sighvatur@lysing.is, s: 540 1700
|