English Icelandic
Birt: 2017-10-02 18:08:34 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf. : Niðurstöður víxlaútboðs

Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokkum, LBANK 180312 og LBANK 180410 og nýjum flokki, LBANK 181010.

Heildartilboð í útboðinu voru 14 talsins og námu samtals 1.380 m. kr.

Fjögur tilboð að fjárhæð 420 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180312 og voru vextir tilboða á bilinu 4,55%-4,70%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Átta tilboð að fjárhæð 840 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180410 og voru vextir tilboða á bilinu 4,55%-4,70%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 340 m. kr. á 4,60% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,7273.

Tvö tilboð að fjárhæð 120 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 181010 og voru vextir tilboða á bilinu 4,65%-4,90%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. október 2017.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.