Icelandic
Birt: 2017-09-18 11:29:58 CEST
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 37. viku 2017 keyptu Hagar hf. 2.724.188 eigin hluti fyrir kr. 96.436.458 eins og hér segir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Haga eftir viðskipti
11.9.2017 12:10 190.000 36,25 6.887.500 28.565.871
11.9.2017 13:42 500.000 36,00 18.000.000 29.065.871
12.9.2017 14:42 500.000 36,00 18.000.000 29.565.871
12.9.2017 14:42 449.594 36,00 16.185.384 30.015.465
14.9.2017 15:29 135.000 35,50 4.792.500 30.150.465
15.9.2017 09:39 500.000 34,30 17.150.000 30.650.465
15.9.2017 09:39 449.594 34,30 15.421.074 31.100.059
Samtals   2.724.188   96.436.458  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 14. ágúst 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 11. ágúst 2017.

Hagar hafa nú keypt samtals 11.931.710 hluti í félaginu sem samsvarar 47,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 427.899.484 sem samsvarar 42,8% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 31.100.059 eigin hluti, eða 2,65% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.171.502.190.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 25.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.000 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 6. júní 2018 eða fram að aðalfundi félagsins 2018, nema ef skilyrði um hámarkskaup verða uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.