Icelandic
Birt: 2017-09-07 18:27:20 CEST
Festi hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

N1 hf: N1 kaupir Klettagarða 13

N1 keypti í dag fasteignina að Klettagörðum 13 af FAST-2 ehf. Í lok árs 2012 seldi N1 FAST-2 ehf. eignina en samhliða sölunni leigði félagið hana til baka til 10 ára með kauprétti að henni eftir 5 ár og aftur í lok leigutíma á framreiknuðu söluverði. Fasteignin er 8.926 fermetrar og er að mestu notuð undir vöruhúsastarfsemi félagsins en þar er einnig fyrirtækjaverslun. Kaupverð eignarinnar er 1.653 m.kr. sem samsvarar um 7,3% arðsemi fjárfestingarinnar. EBITDA félagsins hækkar við kaupin um 90 m.kr. og handbært fé frá rekstri hækkar um 120 m.kr. á ársgrundvelli, að öðru óbreyttu.