English Icelandic
Birt: 2017-09-06 20:43:04 CEST
Íslandsbanki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Leiðrétting: Íslandsbanki hf.: Niðurstaða víxlaútboðs

Leiðrétting á frétt sem birt var 17:14 05.09.2017 GMT.  Ástæða leiðréttingar er að samþykkt tilboð í 6 mánaða víxilinn voru ekki rétt. Tilboðum var tekið fyrir 1.040 m.kr. en ekki 820 m.kr. Í heild var tilboðum tekið fyrir 1.260 m.kr. í stað 1.040 m.kr.

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 2.960 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.260 m.kr.

Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 1.040 m.kr. á 4,56% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 2.140 m.kr. á bilinu 4,50% - 4,70%.

Seldir voru víxlar til 12 mánaða að nafnverði 220 m.kr. á 4,69% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 820 m.kr. á bilinu 4,60% - 4,95%.

Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 12. september.

Nánari upplýsingar veita:

  • Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  • Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005.