English Icelandic
Birt: 2017-09-04 17:45:20 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstöður víxlaútboðs

Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokkum, LBANK 180212 og LBANK 180312 og nýjum flokki, LBANK 180910.

Heildartilboð í útboðinu voru 32 talsins og námu samtals 3.700 m. kr.

Tólf tilboð að fjárhæð 1.280 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180212 og voru vextir tilboða á bilinu 4,58%-4,75%. Tilboðum að fjárhæð 240 m. kr. var tekið á 4,59% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 98,0743.

Fimmtán tilboð að fjárhæð 1.800 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180312 og voru vextir tilboða á bilinu 4,55%-4,75%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 960 m. kr. á 4,62% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,7176.

Fimm tilboð að fjárhæð 620 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180910 og voru vextir tilboða á bilinu 4,65%-5,00%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 11. september 2017.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar