Icelandic
Birt: 2017-08-28 18:22:51 CEST
Kvika banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa Kviku banka hf. á öllu hlutafé í Virðingu hf.

28. ágúst 2017

Í dag tók Samkeppniseftirlitið ákvörðun nr. 30/2017 vegna kaupa Kviku banka hf. á öllu hlutafé í Virðingu hf. Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins er á þá leið að kaup Kviku banka hf. á öllu hlutafé í Virðingu hf. feli í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði ekki til myndunar markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Að mati Samkeppniseftirlitsins eru því ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005. Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins er aðgengileg á heimasíðu þess www.samkeppni.is.