Icelandic
Birt: 2017-08-28 16:51:50 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun og lok endurkaupaáætlunar

Í 34. og 35. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.862.318 eigin hluti fyrir 169.954.925 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð      Eigin hlutir eftir viðskipti
21.8.2017 14:53 350.000 94,3 33.005.000 13.487.682
22.8.2017 11:41 350.000 92,8 32.480.000 13.837.682
23.8.2017 09:32 350.000 91,0 31.850.000 14.187.682
24.8.2017 09:32 350.000 88,0 30.800.000 14.537.682
25.8.2017 14:47 350.000 90,7 31.745.000 14.887.682
28.8.2017 13:12 112.318 89,7 10.074.925 15.000.000
Samtals   1.862.318   169.954.925    

Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 24. mars 2017, er nú lokið og hefur áætlun félagsins um kaup á eigin bréfum verið náð.

Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 15.000.000 hlutum og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 1.500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin var í gildi til aðalfundardags 2018 nema öðru hvoru framangreindra marka yrði náð áður. Félagið hefur nú keypt samtals 15.000.000 hluti fyrir samtals 1.498.847.898 kr. og er því framangreindu marki um fjölda keyptra hluta náð. Reitir eiga nú samtals sem nemur 2,08% af heildarhlutafé félagsins.

Endurkaupaáætlunin var framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik, nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar veitir:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.