Icelandic
Birt: 2017-08-25 18:02:09 CEST
Hagar hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 34. viku 2017 keyptu Hagar hf. 3.798.376 eigin hluti fyrir kr. 137.766.130 eins og hér segir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Haga eftir viðskipti
21.8.2017 11:28 949.594 36,80 34.945.059 22.966.725
22.8.2017 15:12 500.000 36,20 18.100.000 23.466.725
22.8.2017 15:12 449.594 36,20 16.275.303 23.916.319
23.8.2017 09:40 500.000 36,00 18.000.000 24.416.319
23.8.2017 15:22 449.594 36,00 16.185.384 24.865.913
25.8.2017 14:28 500.000 36,15 18.075.000 25.365.913
25.8.2017 14:50 449.594 36,00 16.185.384 25.815.507
Samtals   3.798.376   137.766.130  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 14. ágúst 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 11. ágúst 2017.

Hagar hafa nú keypt samtals 6.647.158 hluti í félaginu sem samsvarar 26,6% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 240.607.160 sem samsvarar 24,1% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 25.815.507 eigin hluti, eða 2,20% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.171.502.190.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 25.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.000 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 6. júní 2018 eða fram að aðalfundi félagsins 2018, nema ef skilyrði um hámarkskaup verða uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.