Icelandic
Birt: 2017-08-21 19:41:40 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 33. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.050.000 eigin hluti fyrir 100.489.560 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð       Eigin hlutir eftir viðskipti
14.8.2017 10:50 350.000 96,2 33.670.000 12.437.682
15.8.2017 14:51 289.120 94,9 27.437.488 12.726.802
15.8.2017 15:21 60.880 94,4 5.747.072 12.787.682
18.8.2017 10:23 350.000 96,1 33.635.000 13.137.682
Samtals   1.050.000   100.489.560  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 24. mars 2017.                              
                              
Reitir hafa nú keypt samtals 13.137.682 hluti í félaginu sem samsvarar 87,58% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 1.328.892.973 krónum sem samsvarar 88,59% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 13.137.682 hluti, eða 1,82% af heildarhlutafé félagsins.                              
                              
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.