Kvika banki hf.: Afkomutilkynning vegna fyrri árshelmings 2017 18. ágúst 2017 Kvika banki hf. Á stjórnarfundi þann 18. ágúst 2017, samþykkti stjórn og forstjóri árshlutareikning samstæðu Kviku banka hf. fyrir tímabilið 1. janúar 2017 til 30. júní 2017. Helstu atriði úr árshlutareikningi: - Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins 2017 nam 946 milljónum króna.
- Hreinar rekstrartekjur námu 2.573 milljónum króna á fyrri helmingi 2017 samanborið við 2.164 milljónir króna á fyrri helmingi 2016.
- Hreinar þóknanatekjur námu 1.296 milljónum króna á fyrri helmingi 2017 samanborið við 1.165 milljónir króna á fyrri helmingi 2016.
- Hreinar vaxtatekjur námu 807 milljónum króna á fyrri helmingi 2017 samanborið við 528 milljónir króna á fyrri helmingi 2016.
- Rekstrarkostnaður nam 1.609 milljónum króna á fyrri helmingi 2017 samanborið við 1.668 milljónir króna á fyrri helmingi 2016.
- Heildareignir 30. júní 2017 námu 90.986 milljónum króna samanborið við 59.563 milljónir króna í lok árs 2016.
- Eigið fé samstæðunnar 30. júní 2017 nam 8.208 milljónum króna.
- Arðsemi eiginfjár á ársgrundvelli m.v. afkomu fyrri helmings 2017 var 26,2%.
- Eiginfjárhlutfall 30. júní 2017 var 23,1%.
- Lausafjárþekja (LCR) 30. júní 2017 var 193%.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku: "Starfsemi Kviku á fyrri hluta árs gekk mjög vel og afkoma bankans er vel umfram væntingar. Það er veruleg aukning í bæði þóknana- og vaxtatekjum og á sama tíma tókst að halda rekstrarkostnaði á áætlun. Góður árangur hefur náðst í uppbyggingu félagsins á undanförnum misserum og eiga starfsmenn Kviku mikið hrós skilið fyrir vel unnin störf og mikilvægt framlag til uppbyggingar bankans. Við horfum fram á spennandi tíma á næstunni. Kvika festi nýverið kaup á öllu hlutafé í Virðingu og Öldu sjóðum. Kaupin eru nú til umfjöllunar hjá eftirlitsaðilum en gangi þau eftir verður Kvika einn umsvifamesti aðilinn á eignastýringarmarkaði með um 280 milljarða í stýringu." Hagnaður Kviku á fyrri helmingi 2017 tæpur milljarður Hagnaður Kviku fyrstu sex mánuði ársins 2017 nam 946 milljónum króna samanborið við 378 milljónir króna á fyrri helmingi 2016. Mikill tekjuvöxtur var á fyrri helmingi árs 2017 samanborið við fyrri hluta árs 2016. Hreinar vaxtatekjur námu 807 milljónum króna á fyrri helmingi 2017 sem er 53% aukning frá fyrri helmingi 2016 og skýrist einna helst af hagstæðari fjármögnun bankans. Hreinar þóknanatekjur námu 1.296 milljónum króna á fyrri helmingi árs 2017 og jukust um 11% frá fyrri helmingi 2016. Vöxtur var í þóknanatekjum hjá nær öllum tekjusviðum bankans á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.609 milljónum króna á fyrri hluta árs 2017 og lækkaði um 3,6% samanborið við fyrri hluta árs 2016. Rekstrarkostnaður er í takt við áætlanir bankans þrátt fyrir aukin umsvif og tekjuaukningu. Arðsemi eiginfjár á fyrstu sex mánuðum ársins 2017 nam 26,2%. Sterkur efnahagur Í lok júní 2017 námu heildareignir samstæðu Kviku 90.986 milljónum króna samanborið við 59.563 milljónir króna í árslok 2016 og nemur hækkunin 53% á tímabilinu. Útlán til viðskiptavina námu rúmum 25 milljörðum króna í lok júní 2017. Almenn innlán og peningamarkaðsinnlán jukust verulega á tímabilinu, um rúma 25 milljarða króna, eða 55%. Lausafjárstaða bankans er sterk og nam lausafjárþekjan (LCR) 193% í lok júní 2017 vel umfram kröfur um 100% lágmarksþekju. Handbært fé í lok tímabilsins nam 28.213 milljónum króna. Eigið fé í lok júní 2017 var 8.208 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 23,1% samanborið við 20,6% í árslok 2016. Eiginfjárstaða bankans er sterk og eiginfjárhlutfall vel umfram kröfur eftirlitsaðila. Stjórn Kviku hefur ákveðið að skoða kosti þess að skrá bankann á First North markaðinn. First North er norrænn hliðarmarkaður fyrir hlutabréfaviðskipti sem er sérsniðinn fyrir félög í vexti. First North nýtir sömu innviði og dreifingarnet og Nasdaq Nordic, sem veitir viðskiptaaðilum, skráðum félögum, fjárfestum og öðrum aðilum á markaðnum greiðan aðgang að um 80% af verðbréfamarkaði Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Ráðgert er að ákvörðun um hvort af skráningu Kviku á First North verði, liggi fyrir í lok október 2017. --- Nánari upplýsingar veitir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku í síma 540 3200 eða 612 7075. --- Um Kviku banka hf. Kvika er eini sjálfstæði og sérhæfði fjárfestingabanki landsins. Bankinn sinnir þörfum viðskiptavina á afmörkuðum syllum með fagþekkingu og sérhæfðu vöruframboði. Burðarás Kviku er öflug eignastýring og veitir bankinn sparifjár- og innlánseigendum alhliða fjármálaþjónustu. Hjá Kviku starfar samhentur hópur 84 sérfræðinga sem nær árangri í krafti menntunar, markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu. Eignarhald Kviku er gagnsætt og er hann eini bankinn sem er að fullu í eigu einkaaðila s.s. lífeyrissjóða, fyrirtækja og einstaklinga. Nánar á: www.kvika.is.
|