Lýsing hf: Árshlutareikningur Afkoma Lýsingar hf. fyrstu sex mánuði ársins 2017 Stjórn Lýsingar hf. samþykkti árshlutareikning fyrir rekstrartímabilið 1.1.-30.6.2017 þann 17. ágúst 2017. Helstu lykiltölur árshlutareikningsins eru: - Heildar tekjur voru 953 m.kr. og hækkuðu um 2,8% frá sama tímabili árið 2016.
- Hreinar vaxtatekjur á tímabilinu voru 649 m.kr. sem er 1,9% lækkun frá sama tímabili árið 2016.
- Rekstrarkostnaður var 522 m.kr. og hækkar um 1,3% frá sama tímabili árið 2016, en að teknu tilliti til einskiptisliðar á árinu 2016 er lækkun rekstrarkostnaðar um 10,5%.
- Hrein virðisbreyting var jákvæð um 242 m.kr sem er 176 m.kr. aukning frá sama tímabili árið 2016.
- Hagnaður tímabilsins var 1.480 m.kr. sem er 420% hækkun milli ára, en þar af var tekjuskattsinneign að fjárhæð 991 m.kr. tekjufærð á tímabilinu en áætlanir félagsins til næstu ára gera ráð fyrir að félagið geti nýtt inneignina á móti skattskyldum hagnaði.
- Arðsemi eigin fjár var 24,0% á ársgrundvelli.
- Heildareignir í lok tímabilsins voru 29.278 m.kr.
- Eigið fé var 12.737 m.kr.
- Reiknað eiginfjárhlutfall (CAD) er 46,3%
Frekari upplýsingar um félagið má finna á https://www.lysing.is/lysing/starfsemin/fjarfestatengsl/
|