English Icelandic
Birt: 2017-07-27 19:02:48 CEST
Icelandair Group hf.
Reikningsskil

Hagnaður á öðrum ársfjórðungi nam 11 milljónum USD – afkomuspá hækkuð

  • Heildartekjur jukust um 11% milli ára og námu 368,9 milljónum USD.
  • EBITDA nam 42,3 milljónum USD samanborið við 53,9 milljónir USD á síðasta ári. 
  • Sætanýting var góð í millilandaflugsstarfseminni 83,6% og jókst um 2,4 prósentustig frá fyrra ári. 
  • Eiginfjárhlutfall var 34% í lok júní.
  • Handbært fé og skammtímaverðbréf nema 360,1 milljón USD og eru 75,4 milljónir USD umfram vaxtaberandi skuldir. 
  • Áherslubreytingar í vöruframboði og innleiðing hagræðingaðgerða ganga samkvæmt áætlun.
  • EBITDA spá hækkuð í 150-160 milljónir USD.

 

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri

"Rekstur annars ársfjórðungs gekk vel. Vöxtur félagsins heldur áfram og við fluttum í fyrsta sinn yfir eina milljón farþega í millilandaflugi á öðrum ársfjórðungi og fjölgaði þeim um 13% milli ára. Það er ánægjulegt að sætanýtingin batnar á sama tíma og framboðið hefur verið aukið. Farþegum Air Iceland Connect fjölgar nokkuð milli ára og aukning er í leiguflugi og fraktstarfsemi. Á hótelum félagsins fjölgaði seldum gistinóttum milli ára en herbergjanýting minnkaði lítillega. Við uppfærum nú EBITDA spá okkar fyrir árið í 150-160 milljónir USD. Helsta ástæða þess er gengisþróun frá því að síðasta spá var birt.

Bókunarstaðan í júlí og ágúst er góð og aðgerðir sem gripið hefur verið til í rekstrinum ganga samkvæmt áætlun. Það eru vissulega miklar annir í íslenskri ferðaþjónustu um þessar mundir en styrking krónunnar og kostnaðarhækkanir gera það að verkum að framlegð í greininni hefur minnkað.

Félagið hefur sterka stöðu og býr yfir framúrskarandi starfsfólki sem er grunnur að velgengni þess."

 

Frekari upplýsingar veita

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801


Frettatilkynning Q2 2017.pdf
Icelandair Group hf 30 6 2017.pdf