English Icelandic
Birt: 2017-07-21 16:49:59 CEST
Icelandair Group hf.
Fjárhagsdagatal

Birting uppgjörs 2. ársfjórðungs 2017

Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung ársins 2017, fimmtudaginn 27. júlí 2017. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 28. júlí 2017 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í sal 4-5. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/