Skeljungur: Skeljungur slítur viðræðum um kaup á 10-11 og tengdum félögum Stjórn Skeljungs hf. hefur ákveðið að slíta samningaviðræðum um kaup Skeljungs á öllu hlutafé í Basko. Líkt og fram kom í tilkynningu Skeljungs, dags. 21. maí 2017, voru kaupin háð ýmsum forsendum og fyrirvörum, sem ekki gengu eftir. Nánari upplýsingar veitir Valgeir M. Baldursson, forstjóri, í síma 840-3022 og í gegnum tölvupóstfangið fjarfestar@skeljungur.is.
|