Icelandic
Birt: 2017-06-20 02:06:17 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

 Í 24. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 700.000 eigin hluti fyrir 72.450.000 kr. eins og hér segir:  

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð     Eigin hlutir eftir viðskipti
13.6.2017 11:07 350.000 103,5 36.225.000 6.387.296
15.6.2017 10:31 350.000 103,5 36.225.000 6.737.296
Samtals   700.000   72.450.000  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 24. mars 2017.                              
                              
Reitir hafa nú keypt samtals 6.737.296 hluti í félaginu sem samsvarar 44,92% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 705.302.426 krónum sem samsvarar 47,02% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 6.737.296 hluti, eða 0,93% af heildarhlutafé félagsins.                              
                              
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.