Icelandic
Birt: 2017-06-02 20:00:00 CEST
Hagar hf.
Boðun hluthafafundar

Hagar hf. - Framboð til stjórnar á aðalfundi 7. júní 2017

Aðalfundur Haga hf. verður haldinn miðvikudaginn 7. júní 2017. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 09:00.

Framboðsfrestur til stjórnar Haga hf. rann út þann 2. júní sl. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Stjórnarmenn:

  1. Erna Gísladóttir, kt. 050568-2969
  2. Kristín Friðgeirsdóttir, kt. 090871-5369
  3. Salvör Nordal, kt. 211162-5119
  4. Sigurður Arnar Sigurðsson, kt. 090164-2529
  5. Stefán Árni Auðólfsson, kt. 210772-4729

Samkvæmt samþykktum Haga hf. eiga fimm sæti í stjórn félagsins og er því sjálfkjörið. Önnur framboð bárust ekki. Er það mat stjórnar að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. í hlutafélagalögum nr. 2/1995.

 

Erna Gísladóttir (f. 1968)

Erna var fyrst kjörin í stjórn Haga hf. þann 1. mars 2010. Hún er með MBA-gráðu frá IESE í Barcelona og B.Sc.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Erna er forstjóri og eigandi BL ehf. og er ræðismaður Suður-Kóreu á Íslandi. Erna var forstjóri Bifreiða & landbúnaðarvéla hf. 2003-2008 og einn af eigendum þess félags, en hún var framkvæmdastjóri hjá B&L 1991-2003. Erna situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Eldhúsvörur ehf., BLIH eignarhald hf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf., EGG ehf., BL ehf., EGG fasteignir ehf. (varamaður) og Hregg ehf. (varamaður). Erna á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hún er fjárhagslega tengd Sjóvá-Almennum tryggingum hf. sem eiga 6.888.889 hluti í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

 

Kristín Friðgeirsdóttir (f. 1971)

Kristín var fyrst kjörin í stjórn Haga hf. þann 11. maí 2011. Hún er með Ph.D.-gráðu í rekstrarverkfræði frá Stanford University, M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði frá Stanford University og B.Sc.-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Kristín kennir við London Business School og stundar ráðgjöf, rannsóknir og kennslu á sviði ákvarðanatöku, áhættustýringar, verðlagningar og tekjustýringar. Hún hefur starfað sem ráðgjafi hjá McKinsey, Intel, AMD, Yahoo og öðrum internet- og fjármálafyrirtækjum og kennir stjórnendum erlendra fyrirtækja ákvarðanatöku, s.s. Mars, Sanofi, Oman Oil og Lloyds. Kristín situr í háskólaráði Háskólands í Reykjavík og er stjórnarmaður í Tryggingamiðstöðinni hf. og Distica hf. Hvorki Kristín né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

 

Salvör Nordal (f. 1962)

Salvör var fyrst kjörin í stjórn Haga hf. þann 5. júní 2014. Hún er með Ph.D.-gráðu í heimspeki frá Háskólanum í Calgary, M.Phil í Social Justice frá Háskólanum í Stirling og B.A.-gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands. Salvör er forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og hefur sinnt því starfi frá árinu 2001. Salvör hefur starfað sem háskólakennari frá árinu 1998, var í vinnuhópi um siðferði og starfshætti í tengslum við Rannsóknarnefnd Alþingis um fall bankanna, formaður Stjórnlagaráðs 2011, framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins 1989-1994 og framkvæmdastjóri Listahátíðar 1986. Auk þess hefur Salvör setið í Fjölmiðlanefnd frá árinu 2011 og sinnt margs konar fjölmiðla- og trúnaðarstörfum. Salvör situr í stjórn sjóðs Samtaka fjárfesta, almennra hlutabréfa og sparifjáreigenda, fyrir hönd samtakanna og er varamaður í stjórn Hugljómunar ehf. Hvorki Salvör né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

 

Sigurður Arnar Sigurðsson (f. 1964)

Sigurður Arnar var fyrst kjörinn í stjórn þann 5. júní 2014. Hann er með Cand. Oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Sigurður Arnar er forstjóri eigin fyrirtækis sem sinnir ráðgjafa- og fjárfestingastarfsemi. Sigurður Arnar var áður forstjóri Húsamiðjunnar 2010-2013, forstjóri Kaupáss 2004-2006, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Byko 2000-2004 og framkvæmdastjóri Elko 1997-2000. Á árunum 1993-1996 var Sigurður Arnar eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækis í matvælaiðnaði og 1990-1993 starfaði hann við endurskoðun hjá Arthur Andersen og KPMG ehf. Sigurður Arnar situr í stjórnum Framsýnar ehf. og Metex ehf. Hvorki Sigurður Arnar né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.

 

Stefán Árni Auðólfsson (f. 1972)

Stefán Árni var fyrst kjörinn í stjórn Haga hf. þann 7. júní 2013. Hann er menntaður lögfræðingur (Cand. jur) frá Háskóla Íslands og er með framhaldsmenntun frá Háskólanum í Kent í Bretlandi. Stefán Árni er með réttindi sem héraðsdómslögmaður og próf í verðbréfaviðskiptum. Stefán Árni starfar sem lögmaður hjá LMB lögmönnum slf. Stefán Árni hefur áður sinnt störfum hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins 2005-2011, á nefndasviði Alþingis 2003-2005 og hjá Fortis lögmannsstofu 1999-2005. Stefán Árni situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Hváll ehf., Síminn hf., Gamli Byr eignarhaldsfélag ehf., Egla hf. og GGX ehf. (varamaður). Hvorki Stefán Árni né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf. Engin hagsmunatengsl eru við helstu viðskiptavini félagsins, samkeppnisaðila eða stóra hluthafa.