Icelandic
Birt: 2017-05-29 19:34:25 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 21. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 665.765 eigin hluti fyrir 71.234.890 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð      Eigin hlutir  eftir viðskipti
22.5.2017 11:21 3.930 106,5 418.545 3.625.461
23.5.2017 15:03 311.835 107 33.366.345 3.937.296
24.5.2017 09:54 127.874 107 13.682.518 4.065.170
24.5.2017 09:55 222.126 107 23.767.482 4.287.296
Samtals   665.765   71.234.890  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 24. mars 2017.                              
                              
Reitir hafa nú keypt samtals 4.287.296 hluti í félaginu sem samsvarar 28,58% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 449.627.426 krónum sem samsvarar 29,98% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 4.287.296 hluti, eða 0,59% af heildarhlutafé félagsins.                              
                              
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.