Icelandic
Birt: 2017-05-22 18:05:04 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 20. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.142.223 eigin hluti fyrir 123.406.196 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð     Eigin hlutir eftir viðskipti
16.5.2017 11:04 350.000 106,5 37.275.000 2.829.308
17.5.2017 14:17 92.223 108,5 10.006.196 2.921.531
18.5.2017 12:42 350.000 108,5 37.975.000 3.271.531
19.5.2017 14:50 350.000 109 38.150.000 3.621.531
Samtals   1.142.223   123.406.196  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 24. mars 2017.                                         
                                         
Reitir hafa nú keypt samtals 3.621.531 hluti í félaginu sem samsvarar 24,14% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 378.392.536 krónum sem samsvarar 25,23% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 3.621.531 hluti, eða 0,50% af heildarhlutafé félagsins.                                         
                                         
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.