Icelandic
Birt: 2017-05-17 19:40:35 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

REITIR: Skráð lækkun hlutafjár

Á aðalfundi Reita fasteignafélags hf. þann 14. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um 18.969.573 kr. að nafnvirði. Nam það eigin hlutafé félagsins eins og það stóð þann 17. febrúar 2017 og því þannig eytt.

Lögmælt skilyrði lækkunarinnar hafa verið uppfyllt og hefur hlutafjárlækkunin nú verið skráð í Fyrirtækjaskrá. Skráð hlutafé Reita eftir lækkunina er að nafnvirði 721.356.201 kr. en var fyrir lækkunina 740.325.774 kr. að nafnvirði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669-4416.