Birting viðauka við grunnlýsingu
Reginn hf. hefur birt viðauka við grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma sem dagsett er 9. maí 2017. Viðaukinn sem er dagsettur 15. maí 2017 hefur verið staðfestur af Fjármálaeftirlitinu.
Viðaukinn er á íslensku og birtur með rafrænum hætti á vef Regins, www.reginn.is/fjarfestavefur/skuldabrefautbod. Fjárfestar geta einnig nálgast viðaukann og grunnlýsinguna sér að kostnaðarlausu á skrifstofu Regins, í 12 mánuði frá dagsetningu grunnlýsingarinnar.
Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – s: 512 8900 / 899 6262
|