Icelandic
Birt: 2017-05-10 11:01:36 CEST
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lýsing hf: Útboð á verðtryggðum skuldabréfum 11. maí 2017

Lýsing hf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 11. maí næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í nýjum skuldabréfaflokki LYSING 17 1.

LYSING 17 1 er nýr verðtryggður skuldabréfaflokkur með veði í útlánum og fjármögnunarsamningum Lýsingar. Bréfið 7 ára jafngreiðslubréf og ber fasta 3,95% verðtryggða vexti.

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu. Skuldabréfin eru seld á pari. Skuldabréfin eru gefin út í 10 m.kr. einingum og verða skráð í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds flokks skuldaskjala eru birt á vefsíðu félagsins, www.lysing.is/lysing/starfsemin/fjarfestatengsl/

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s:896 6566

Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lýsingar hf., sighvatur@lysing.is, s:540 1700