Icelandic
Birt: 2017-05-03 13:30:01 CEST
TM hf.
Reikningsskil

Tryggingamiðstöðin hf. - Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2017

Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2017 verður birt þann 10. maí 2017 - kynningarfundur 11. maí kl. 8:30.

Tryggingamiðstöðin býður til kynningar á afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi fimmtudaginn 11. maí  kl. 8:30. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum félagsins að Síðumúla 24, 4. hæð.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins TM.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Hægt er að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: https://global.gotomeeting.com/join/186071693