Icelandic
Birt: 2017-04-25 19:27:37 CEST
Lykill fjármögnun hf.
Niðurstöður hluthafafundar

Lýsing hf: Niðurstöður aðalfundar

Aðalfundur Lýsingar hf. var haldinn þriðjudaginn 25. apríl 2017 kl. 9 í húsakynnum félagsins að Ármúla 1, Reykjavík.

Helstu niðurstöður fundarins:

1.       Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár

Aðalfundur samþykkti skýrslu stjórnar samhljóða.

2.       Ársreikningur fyrir liðið starfsár

Aðalfundur samþykkti ársreikning vegna ársins 2016.

3.       Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar eða taps félagsins

Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um að hluthöfum verði greiddar 700 milljónir króna í arð vegna ársins 2016.

4.       Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins

Engar tillögur lágu fyrir um breytingar á samþykktum félagsins og eru þær því óbreyttar.

5.       Kosning stjórnar

Sjálfkjörið var í stjórn og varastjórn félagsins og er hún óbreytt frá fyrra tímabili.

Aðalmenn:

Hörður Gunnarsson
Jóhanna Waagfjörð
Jón Örn Guðmundsson
Magnús Scheving Thorsteinsson
Brynja Steinsen

Varamenn:
Pétur J Eiríksson
Steinn Logi Björnsson

6.       Kosning endurskoðanda

Tillaga stjórnar um að Ernst & Young hf. verði áfram endurskoðunarfélag Lýsingar hf. var samþykkt.

7.       Ákvörðun um þóknun stjórnar

Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um óbreytt stjórnarlaun.

8.       Starfskjarastefna

Aðalfundur samþykkti tillögur stjórnar um starfskjarastefnu.

9.       Önnur mál

Önnur mál voru ekki borin upp og var fundi slitið kl. 9:20

Nánari upplýsingar veitir Árni Huldar Sveinbjörnsson, s. 540 1700