Icelandic
Birt: 2017-04-06 19:07:41 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Niðurstöður skuldabréfaútboðs 6. apríl

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 6. apríl 2017 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er eftir atvikum endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa.

Alls bárust tilboð í flokkana að nafnvirði 1.030 milljóna króna. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 180 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 5,80% í flokknum REITIR 22. Tilboðum í flokkinn REITIR151244 var ekki tekið og ekki bárust tilboð í flokkinn REITIR151124.

Heildarstærð ofangreindra flokka verður eftirfarandi:

Flokkur:               Áður útgefið:    Eftir útgáfu nú:

REITIR151244     33.085.200.000  33.085.200.000

REITIR151124     3.230.000.000    3.230.000.000

REITIR 22             600.000.000        780.000.000

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð þriðjudaginn 18. apríl 2017 og óskað verður eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.