Icelandic
Birt: 2017-04-06 18:13:10 CEST
Fjarðabyggð
Reikningsskil

Ársreikningur Fjarðabyggðar 2016 tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn

Fimmtudaginn 6. apríl 2017 fer fram fyrri umræða í bæjarstjórn Fjarðabyggðar um ársreikning bæjarfélagsins fyrir árið 2016. Ársreikningurinn hefur verið áritaður af bæjarráði og bæjarstjóra. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn. Áformað er að ársreikningurinn verði afgreiddur við síðari umræðu í bæjarstjórn þann 27. apríl næstkomandi.

Á heildina litið er rekstrarafkoma Fjarðabyggðar góð og lækkun skuldaviðmiðs umfram áætlanir. Skuldaviðmið samstæðu í lok ársins 2016 er 128%.

Rekstrarniðurstaða ársins hjá samstæðu A og B hluta var jákvæð um 378 millj. kr. en rekstrarniðurstaða A hluta neikvæð um 65 millj. kr.

Rekstrarniðurstaða, án afskrifta og fjármagnsliða, hjá samstæðu A og B hluta var jákvæð sem nam 1.068 millj. kr. á árinu. Þar af var rekstrarniðurstaða í A hluta 358 millj. kr. Framlegð eða EBITDA nam 17% hjá samstæðu og tæplega 8% í A hluta.

Rekstrartekjur, samstæðu A og B hluta sveitarfélagsins, námu samtals 6.209 millj. kr. en þar af námu rekstrartekjur A hluta 4.654 millj. kr. Til samanburðar voru rekstrartekjur samstæðu 5.830 millj. kr. árið 2015.

Rekstrargjöld, án afskrifta, í samstæðu A og B hluta námu 5.142 millj. kr. og þar af voru rekstrargjöld A hluta 4.296 millj. kr. Breyting launa og launatengdra gjalda í samstæðu til hækkunar nam 11% eða um 310 millj. kr. á milli áranna 2015 og 2016. Gjaldfærðar lífeyrisskuldbindingar hækkuðu um 177 millj.kr. milli ára. Launakostnaður án lífeyrisskuldbindingar hækkaði um 5% milli ára. Annar rekstarkostnaður samstæðu hækkaði um 241 millj. kr. milli áranna 2015 og 2016 og nam 2.004 millj. kr. á árinu 2016..

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur, í samstæðu A og B hluta, námu 280 millj. kr. samanborið við 249 millj. kr. árið 2015.

Fjárfesting í samstæðu A og B hluta umfram söluverð rekstrarfjármuna, nam samtals 896 millj. kr. á árinu 2016 samanborið við 653 millj. kr. árið áður. Helstu fjárfestingar ársins voru vegna hafnarmannvirkja og leikskólabyggingar.

Afborganir langtímalána námu 1.217 millj. kr. á árinu og afborganir leiguskuldbindinga námu 34 millj. kr. á árinu eða samtals 1.251 millj. kr. Tekið var skammtímalán upphæð 650 millj. kr. til endurfjármögnunar sem aftur hefur verið breytt í langtímalán á árinu 2017. Handbært fé lækkaði á árinu um 215 millj. kr. og nam 375 millj. kr. í árslok 2016.

Eignir sveitarfélagsins voru í lok árs 2016 samtals að fjárhæð 12.621 millj. kr., þar af 11.043 millj. kr. fastafjármunir. Langtímaskuldir við lánastofnanir eru 4.583 millj. kr., leiguskuldir 168 millj. kr., skammtímaskuldir 1.455 millj. kr., lífeyrisskuldbinding 2.224 millj. kr. og næsta árs afborganir 467 millj. kr. Heildar skuldir samstæðunnar lækka milli ára um 168 millj. kr

Eigið fé samstæðu var 3.724 millj. kr. í árslok 2016 samanborið við 3.188 millj. kr. í árslok 2015. Breyting á eigin fé skýrist af rekstrarniðurstöðu ársins og endurmati á verðmæti lóða og lenda.

Skuldaviðmið Fjarðabyggðar og stofnana er um áramótin 2016 er 128% en var 141% um áramótin 2015. Skuldahlutfall Fjarðabyggðar er á sama hátt 143% um áramótin en var 156% 2015. Samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga skal hlutfallið ekki vera hærra en 150% en frestur var veittur í sveitarstjórnarlögum til ársins 2022 um að ná þessu viðmiði.

Í ársreikningi Fjarðabyggðar 2016 kemur styrkur sveitarfélagsins vel fram. Rekstur A hluta Þarf enn að bæta til að auka sveigjanleika m.a. til að takast á við hugsanlegar sveiflur í tekjum sem og frekari fjárfestingar í innviðum samfélagsins. Þó Fjarðabyggð hafi náð að lækka skuldaviðmiðið niður fyrir lögbundið hámark er mikilvægt að áfram verði unnið að rekstrarlegri hagræðingu og lækkun skulda sveitarfélagsins.

Sterkur tekjugrunnur, sem byggður er meðal annars á sterkum atvinnugreinum í sjávarútvegi, áliðnaði og þjónustugreinum, gefur á hinn bóginn fyrirheit um kraftmikið samfélag til framtíðar litið líkt og áður.

Nánari upplýsingar veita Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Snorri Styrkársson fjármálastjóri í síma 470-9000.


Fjarabygg 31.12.2016 fyrri umra aritaur.pdf