Icelandic
Birt: 2017-04-03 23:50:26 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 13. viku 2017 keypti Reitir fasteignafélag hf. 350.000 eigin hluti fyrir 33.775.000 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð      Eigin hlutir eftir viðskipti
30.3.2017 09:46 350.000     96,5     33.775.000     350.000
Samtals   350.000       33.775.000  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 27. mars 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 24. mars 2017.

Reitir hafa nú keypt samtals 350.000 hluti í félaginu sem samsvarar 2,33% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt ofangreindri áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 33.775.000 krónum sem samsvarar 2,25% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 350.000 hluti, eða 0,048% af heildarhlutafé félagsins eins og það verður eftir að lækkun hlutafjár sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 14. mars sl. hefur formlega verið skráð.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 15.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða í síðasta lagi á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.