Icelandic
Birt: 2017-03-14 17:04:12 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Niðurstöður hluthafafundar

REITIR: Niðurstöður aðalfundar 2017

Þriðjudaginn 14. mars 2017 var aðalfundur Reita fasteignafélags hf. haldinn á Hótel Reykjavík Natura. Fundurinn hófst kl. 15.00.

Tillögur þær sem lágu fyrir fundinum má finna á vefsíðu félagsins http://www.reitir.is/is/reitir/fjarfestayfirlit/adalfundir-reita

1. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár
Aðalfundur samþykkti ársreikning og samstæðureikning félagsins vegna ársins 2016.

2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári
Tillaga stjórnar um að greiða út arð að fjárhæð 1,45 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár í félaginu vegna rekstrarársins 2016 var samþykkt. Arðgreiðsludagur verður þann 31. mars 2017, 16. mars 2017 er arðleysisdagur og 17. mars 2017 verður arðsréttindadagur.

3. Starfskjarastefna félagsins
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um óbreytta starfskjarastefnu, en hana má nálgast á vefsíðu Reita http://www.reitir.is/is/reitir/um-felagid/stjornarhaettir/starfskjarastefna.

4. Heimild til kaupa á eigin hlutum
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutum.

5. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum
Tillaga um lækkun hlutafjár úr 740.325.774 kr. í 721.356.201 kr. og tilheyrandi breyting á 4. gr. samþykkta félagsins var samþykkt.

6. Kjör stjórnarmanna félagsins
Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér í stjórn félagsins og voru þau sjálfkjörin:
Elín Árnadóttir
Kristinn Albertsson
Martha Eiríksdóttir
Thomas Möller
Þórarinn V. Þórarinsson

7. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
Aðalfundur samþykkti að KPMG hf. yrði endurkjörið sem endurskoðunarfélag félagsins.

8. Ákvörðun um laun stjórnar og undirnefnda stjórnar fyrir komandi starfsár
Aðalfundur félagsins samþykkti að mánaðarleg stjórnarlaun fyrir komandi starfsár skuli vera 325.000 kr. fyrir almenna stjórnarmenn og 650.000 kr. fyrir stjórnarformann. Þóknun til formanns endurskoðunarnefndar verður 120.000 kr. á mánuði og til annarra nefndarmanna 70.000 kr. á mánuði. Þóknun nefndarmanna í starfskjaranefnd verður 30.000 kr. á mánuði. Greiðslur til endurskoðenda félagsins skulu vera samkvæmt reikningi.

9. Önnur mál
Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum og var honum slitið kl. 16.00.