Icelandic
Birt: 2017-03-13 17:02:44 CET
TM hf.
Boðun hluthafafundar

Framboð til stjórnar Tryggingamiðstöðvarinnar hf. á aðalfundi 16. mars 2017.

Framboðsfrestur til stjórnar Tryggingamiðstöðvarinnar hf. rann út þann 11. mars 2017.  Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Í framboði til aðalstjórnar eru (í stafrófsröð):

Andri Þór Guðmundsson forstjóri,
Einar Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri,
Kristín Friðgeirsdóttir verkfræðingur Ph.D.,
Linda Björk Bentsdóttir, lögmaður,
Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, lögmaður og lektor,
Örvar Kærnested fjárfestir og ráðgjafi.

Til varastjórnar bjóða sig fram (í stafrófsröð):

Bjarki Már Baxter, yfirlögfræðingur,
Bryndís Hrafnkelsdóttir forstjóri.

Stjórn félagsins skal eigi síðar en þremur dögum eftir að framboðsfresti lauk meta hvort hver og einn frambjóðandi sé óháður gagnvart félaginu eða hluthöfum sem eiga 10% hlut í félaginu eða meira.  Er það mat stjórnar að allir frambjóðendur teljast óháðir Tryggingamiðstöðinni hf. og daglegum stjórnendum þess.

Enginn hluthafi ræður yfir 10% af heildarhlutafé eða atkvæðavægi í félaginu, einn eða í samstarfi við tengda aðila, þannig að hann teljist vera stór hluthafi í skilningi laga og félagasamþykkta.  Mat á því hvort frambjóðendur væru óháðir stórum hluthöfum fór því ekki fram.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur má finna í meðfylgjandi viðhengi.


Frambo til stjornar.pdf