Lýsing hf. lýkur skuldabréfaútboði Lýsing hf. hefur nú lokið skuldabréfaútboði í flokknum LYSING 16 1. Alls bárust tilboð að nafnvirði 1.020 m.kr. og var öllum tilboðum tekið á hreina verðinu 100,00 (pari). Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er miðvikudagur 15. mars 2017. Um er að ræða jafngreiðslubréf með 12 gjalddögum á ári og fljótandi vöxtum tengdum við 1M REIBOR að viðbættu 110 punkta álagi. Lokagjalddagi skuldabréfaflokksins er þann 16. október 2023. Áður útgefin skuldabréf í flokknum eru 2.000.000.000 kr. að nafnvirði og hafa verið tekin til viðskipta. Óskað verður eftir því að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland á útgáfudegi. Nánari upplýsingar veita: Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s: 840 4145 Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s: 896 6566 Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lýsingar hf., sighvatur@lysing.is, s: 540 1700
|