Icelandic
Birt: 2017-03-03 11:00:00 CET
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lýsing hf: Útboð á skuldabréfum 9. mars 2017

Lýsing hf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 9. mars næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokknum LYSING 16 1 sem er veðtryggður skuldabréfaflokkur með veði í útlánum og fjármögnunarsamningum Lýsingar. Bréfið er 7 ára jafngreiðslubréf með 12 gjalddögum á ári og fljótandi vöxtum tengdum við 1M REIBOR að viðbættu 110 punkta álagi. Áður útgefin skuldabréf í flokknum eru 2.000.000.000 kr. að nafnvirði og búið er að skrá bréfin í kauphöll.

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er í flokknum. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru birt á vefsíðu félagsins, www.lysing.is/lysing/starfsemin/fjarfestatengsl/.

Nánari upplýsingar veita:

Daði Kristjánsson, Markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, Markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s:896 6566

Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lýsingar hf., sighvatur@lysing.is, s:540 1700