Eik fasteignafélag hf.: Birting ársuppgjörs 2016 - Kynningarfundur 1. mars Eik fasteignafélag hf. mun birta ársuppgjör fyrir árið 2016 eftir lokun markaða þriðjudaginn 28. febrúar 2017. Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 1. mars 2017 klukkan 8:30 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs. Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is s. 590-2200 / 820-8980.
|