English Icelandic
Birt: 2017-02-17 16:45:00 CET
Icelandair Group hf.
Boðun hluthafafundar

Aðalfundur-Endanleg Dagskrá og tillögur

Endanleg dagskrá og tillögur

ICELANDAIR GROUP HF. – AÐALFUNDUR 3. MARS 2017

Haldinn á Hilton Reykjavík Nordica kl. 16:00

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár
  2. Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu
  3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
  4. Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnu
  5. Kosning stjórnar félagsins
  6. Kosning endurskoðanda
  7. Heimild til að kaupa eigin hlutabréf
  8. Önnur mál löglega fram borin

Tillögur

  1. Ársreikningur (liður 2)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að ársreikningur fyrir árið 2016 verði samþykktur.

  1. Arður (liður 2)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að greiddur verði arður til hluthafa að fjárhæð 565 m.kr. í íslenskum krónum, eða 0,11 kr. á hvern hlut. Arðsréttindadagur verði 7. mars 2017 þannig að hluthafar tilgreindir í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags eiga tilkall til arðs vegna rekstrarársins 2016. Arðleysisdagur, það er sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna reikningsársins 2016, verði 6. mars 2017, næsta viðskiptadag eftir aðalfund. Útborgunardagur verði 30. mars 2017.

  1. Þóknun til stjórnarmanna ( liður 3)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að stjórnar- og nefndarlaun verði óbreytt frá síðasta ári: Stjórnarmenn fái 300.000 krónur á mánuði, formaður fái 600.000 krónur á mánuði, varaformaður fái 450.000 krónur á mánuði, nefndarmenn í undirnefndum fái 110.000 krónur á mánuði, formaður endurskoðunarnefndar fái 250.000 krónur á mánuði og formaður starfskjaranefndar 140.000 krónur á mánuði.

  1. Starfskjarastefna (liður 4)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að meðfylgjandi starfskjarastefna verði samþykkt. Stefnan er óbreytt frá síðasta fundi, nema breytingar hafa verið gerðar á 4. mgr. 3. gr. og 5. mgr. 7. gr.

  1. Endurskoðandi (liður 6)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að KPMG hf. verði endurskoðunarfyrirtæki félagsins, en að Alexander Eðvardsson og Auður Ósk Þórisdóttir muni annast endurskoðunina f.h. KPMG.

  1. Heimild til kaupa á eigin bréfum (liður 7)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að félaginu verði heimilt að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af hlutabréfum félagsins, skv. 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.  Ekki er heimilt að kaupa eigin hluti á hærra verði en nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra. Slík kaup eru þó heimil ef þau eru gerð af viðskiptavaka skv. 116. gr. laga um verðbréfaviðskipti eða á grundvelli 1. tölul. 3. mgr. 115. gr. og 2. mgr. 119. gr. laga um verðbréfaviðskipti og reglugerða sem settar eru á grundvelli 118. og 131. gr. sömu laga.


Starfskjarastefna.pdf