Icelandic
Birt: 2017-02-16 17:05:42 CET
Festi hf.
Reikningsskil

N1 hf: EBITDA N1 675 milljónir króna á 4. ársfjórðungi 2016

Helstu niðurstöður:

  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 3.625 m.kr. árið 2016 samanborið við 3.012 m.kr. á sama árið 2015.
  • Framlegð af vörusölu jókst um 10,2 % á árinu 2016
  • Selt magn af bensíni og gasolíu jókst um 9,5% á milli ára vegna aukinna umsvifa í hagkerfinu
  • Umferð á þjóðvegum landsins jókst um 13,4% á árinu 2016 samanborið við 5,8% árið 2015
  • Þróun á heimsmarkaðsverði með eldsneyti hafði jákvæð áhrif á afkomu ársins
  • EBITDA var 675 m.kr. á 4. ársfjórðungi 2016 (4F 2015: 628 m.kr.)
  • Viðsnúningur á virðisrýrnun fasteigna frá 2011 og voru 1.323 m.kr. tekjufærðar í rekstrarreikningi
  • Endurmat fasteigna 4.850 m.kr. fært beint á eigið fé
  • Eigið fé félagsins var 12.572 m.kr. og eiginfjárhlutfall 49,1% í lok árs 2016
  • Nettó vaxtaberandi skuldir voru samtals 4.775 m.kr. í árslok 2016 (2015: 3.972 m.kr. )
  • Meðalfjöldi stöðugilda var 532 á árinu 2016 (2015: 521)

Nánari upplýsingar er að finna í afkomutilkynningu í viðhengi.


N1 hf - Afkomutilkynning 2016.pdf
N1 hf - Arsreikningur 2016.pdf