Icelandic
Birt: 2017-02-09 11:40:09 CET
Reginn hf.
Fjárhagsdagatal

Reginn hf. birtir ársuppgjör 2016, þriðjudaginn 14. febrúar 2017

Reginn hf. mun birta samþykkt ársuppgjör 2016, eftir lokun markaða þriðjudaginn 14. febrúar 2017.

Af því tilefni býður Reginn hf. til opins kynningarfundar miðvikudaginn 15. febrúar nk. kl. 8:30 á skrifstofu Regins í Smáralind, Hagasmára 1, 1. Hæð, Kópavogi. Gengið er inn í skrifstofur Regins beint frá bílastæðahúsi við Norðurturninn.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

https://livestream.com/accounts/11153656/events/6985983/player

Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins kynnir uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu. Einnig verða farið yfir ársskýrslu félagsins og áherslur í rekstri og rekstrarspá fyrir 2017.

Boðið verður upp á morgunverð.

Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262