Icelandic
Birt: 2017-02-09 10:32:05 CET
TM hf.
Fjárhagsdagatal

Uppgjör Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) á fjórða ársfjórðungi 2016 birt 16. febrúar 2017

Kynningarfundur 17. febrúar 2017 kl. 08.30.

 

TM birtir árshlutauppgjör fyrir fjórða ársfjórðung 2016 eftir lokun markaða fimmtudaginn 16. febrúar næstkomandi.

TM býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi kl. 08.30 föstudaginn 17. febrúar. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24, 4. hæð.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins, tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Mögulegt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni:

https://global.gotomeeting.com/join/509690093