Flutningatölur janúar 2017
Í janúar var farþegafjöldi Icelandair tæplega 206 þúsund og jókst um 18% miðað við janúar á síðasta ári. Framboð var aukið um 22%. Sætanýting var 73,6% samanborið við 74,3% í janúar í fyrra. Farþegar Flugfélags Íslands voru um 20 þúsund og fækkaði um 1% milli ára. Framboð í janúar var 24% meira en í janúar á síðasta ári og skýrist það af flugi til Aberdeen sem flogið er í samstarfi við Icelandair og hófst í mars 2016. Sætanýting nam 62,5%. Seldir blokktímar í leiguflugi voru 14% færri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar drógust saman um 14% á milli ára. Skýrist það af verkfalli sjómanna á Íslandi sem hefur haft í för með sér samdrátt í útflutningi á fiski. Framboðnum gistinóttum hjá hótelum félagsins fjölgaði um 14% á milli ára. Herbergjanýting var 69,2% og 8,4 prósentustigum hærri en í janúar 2016.
MILLILANDAFLUG |
JAN 16 |
JAN 15 |
BR. (%) |
Fjöldi farþega |
205.734 |
173.825 |
18% |
Sætanýting |
73,6% |
74,3% |
-0,7 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) |
855,2 |
701,0 |
22% |
|
|
|
|
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG |
JAN 16 |
JAN 15 |
BR. (%) |
Fjöldi farþega |
20.276 |
20.399 |
-1% |
Sætanýting |
62,5% |
70,0% |
-7,5%-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) |
11,1 |
9,0 |
24% |
|
|
|
|
LEIGUFLUG |
JAN 16 |
JAN 15 |
BR. (%) |
Flugvélanýting |
88,9% |
100,0% |
-11,1 %-stig |
Seldir blokktímar |
1.848 |
2.148 |
-14% |
|
|
|
|
FRAKTFLUTNINGAR |
JAN 16 |
JAN 15 |
BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) |
7.398 |
8.630 |
-14% |
|
|
|
|
HÓTEL |
JAN 16 |
JAN 15 |
BR. (%) |
Framboðnar gistinætur |
27.807 |
24.335 |
14% |
Seldar gistinætur |
19.234 |
14.782 |
30% |
Herbergjanýting |
69,2% |
60,7% |
8,4 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010
|