Icelandic
Birt: 2017-02-02 19:17:27 CET
Fagfjárfestasjóðurinn KLS
Reikningsskil

Ársreikningur fagfjárfestasjóðsins KLS vegna ársins 2016

2. febrúar 2017

Ársreikningur fagfjárfestasjóðsins KLS vegna ársins 2016

Fagfjárfestasjóðurinn KLS sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.

  • Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi.
  • Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2016, efnahagi hans 31. desember 2016 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2016, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar um ársreikning KLS veitir Flóki Halldórsson, í síma 444 7464.

 


Arsreikningur KLS Fagfjarfestasjos 2016.pdf