Icelandic
Birt: 2017-01-25 14:00:33 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Útboð á skuldabréfum 30. janúar 2017

Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum mánudaginn 30. janúar næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22, sem allir eru veðtryggðir með fyrirliggjandi almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins. Hinir tveir fyrrnefndu eru verðtryggðir með jöfnum greiðslum en REITIR 22 er óverðtryggður með einni afborgun höfuðstóls eftir sex ár og vaxtagreiðslum á líftíma flokksins.

Fjárfestingabankasvið Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu. Heildarstærð útboðsins getur verið allt að 6.060 milljónir kr. að nafnvirði. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er í hverjum flokki. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. hefur birt í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Nánari upplýsingar veita:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu
einar@reitir.is eða í síma 669 4416, og Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf., á netfanginu verdbrefamidlun@arionbanki.is eða í síma 444 7337.