English Icelandic
Birt: 2017-01-06 16:44:38 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur desember 2016

Í desember flutti Icelandair 220 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 19% fleiri en í desember á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 24% og sætanýting var 77,2% samanborið við 79,2% í desember 2015. Farþegar Flugfélags Íslands voru tæplega 21 þúsund í desember og fjölgaði um 17% á milli ára. Á árinu 2016 hófst flug til Aberdeen, sem flogið er á Bombardier Q400 vélum Flugfélags Íslands. Til þessa hefur það flug verið meðtalið í flutningatölum Icelandair, en frá og með desember er það fært yfir til Flugfélagsins Íslands og jafnframt hafa tölur ársins í heild verið uppfærðar til samræmis. Í desember jókst framboð Flugfélags Íslands um 59% og skýrist það að langmestu leyti af Aberdeenfluginu. Seldir blokktímar í leiguflugi stóðu í stað á milli ára. Fraktflutningar drógust saman um 3% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 67,9% samanborið við 60,7% í desember í fyrra. 

Flutningatölur fyrir árið 2016 liggja nú fyrir. Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á árinu 2016. Þeir voru alls tæplega 3,7 milljónir og fjölgaði um 20% frá fyrra ári. Sætanýting nam 82,2% og lækkaði um 1 prósentustig frá árinu 2015 sem var metár.  Heildarfjöldi farþega Flugfélags Íslands var 323 þúsund og jókst um 9% á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 1% og flutt frakt um 5%. Herbergjanýting á hótelum félagsins á árinu 2016 var 81,5% og hefur aldrei verið hærri.

 

ICELANDAIR DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Fjöldi farþega 219.937 185.216 19% 3.674.461 3.074.175 20%
Sætanýting 77,2% 79,2% -2,0 %-stig 82,2% 83,2% -1,0 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 861,2 697,0 24% 13.653,3 11.083,3 23%
             
FLUGFÉLAG ÍSLANDS DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Fjöldi farþega 20.603 17.672 17% 322.740 296.176 9%
Sætanýting 58,8% 70,5% -11,6 %-stig 69,3% 74,4% -5,1 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 12,4 7,8 59% 179,6 145,0 24%
             
LEIGUFLUG DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 100,0% 0,0 %-stig 100,0% 100,0% 0,0 %-stig
Seldir blokktímar 1.865 1.864 0% 23.523 23.263 1%
             
FRAKTFLUTNINGAR DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.387 8.637 -3% 105.379 100.497 5%
             
HÓTEL DES 16 DES 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 27.807 24.335 14% 352.214 325.941 8%
Seldar gistinætur 18.886 14.779 28% 287.160 254.842 13%
Herbergjanýting 67,9% 60,7% 7,2 %-stig 81,5% 78,2% 3,3 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010

 

 


Traffic Data - December 2016.pdf