Icelandic
Birt: 2016-12-05 18:17:47 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

REITIR: Niðurstöður skuldabréfaútboðs 5. desember

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 5. desember 2016 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa eftir atvikum.

Alls bárust tilboð í flokkana að nafnvirði 2.400 milljóna króna. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.350 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,60% í flokknum REITIR151244, að nafnvirði 150 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,60% í flokknum REITIR151124 og að nafnvirði 300 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 6,09% í flokknum REITIR 22. Áður hafa verið gefin út skuldabréf að nafnvirði 30.955 milljóna króna í flokknum REITIR151244 og verður heildarstærð hans því að nafnvirði 32.305 milljóna króna eftir útgáfuna. Áður hafa verið gefin út skuldabréf að nafnvirði 2.540 milljóna króna í flokknum REITIR151124 og verður heildarstærð hans því að nafnvirði 2.690 milljóna króna eftir útgáfuna. Áður hafa verið gefin út skuldabréf að nafnvirði 300 milljóna króna í flokknum REITIR 22 og verður heildarstærð hans því að nafnvirði 600 milljóna króna eftir útgáfuna.

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð 15. desember næstkomandi og óskað verður eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Nánari upplýsingar veitir:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416