Icelandic
Birt: 2016-11-28 16:09:49 CET
Kvika banki hf.
Fyrirtækjafréttir

Kvika banki hf.: Viljayfirlýsing um undirbúning samruna Kviku banka hf. og Virðingar hf.

Tilkynning

Reykjavík, 28. nóvember 2016

Viljayfirlýsing um undirbúning samruna

Stjórnir Kviku banka hf. og Virðingar hf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um undirbúning samruna félaganna undir nafni Kviku. 

Í aðdraganda sameiningar verður eigið fé Kviku lækkað um 600 m.kr. og lækkunin greidd til hluthafa bankans. Hluthafar Kviku munu eftir samruna eiga 70% hlut í sameinuðu félagi og hluthafar Virðingar 30%.

Með sameiningu Kviku og Virðingar yrði til öflugt fjármálafyrirtæki sem væri leiðandi á fjárfestingabankamarkaði. Sameinað félag yrði einn stærsti aðili í eignastýringu á Íslandi með um 220 milljarða króna í stýringu og fjölda sjóða í rekstri s.s. verðbréfasjóði, fjárfestingasjóði, framtakssjóði, fasteignasjóði, veðskuldabréfasjóði og ýmsa fagfjárfestasjóði. Auk þess myndi sameinað félag ráða yfir öflugum markaðsviðskiptum, fyrirtækjaráðgjöf, sérhæfðri lánastarfsemi og einkabankaþjónustu.

Á næstu vikum verður unnið að samkomulagi um helstu skilmála fyrir samrunanum, þ.m.t. um forsendur, gerð áreiðanleikakannana, endanlega samningsgerð og aðgerðar- og tímaáætlun. Ef sameining félaganna nær fram að ganga er stefnt að því að hún taki gildi um mitt næsta ár.

Nánari upplýsingar veita:
Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður Kviku banka hf. í síma 540 3200.
Kristín Pétursdóttir, stjórnarformaður Virðingar hf. í síma 565 8500.


Viljayfirlysing um undirbuning samruna Kviku banka hf og Viringar hf.pdf