Icelandic
Birt: 2016-11-17 17:53:24 CET
Reginn hf.
Fyrirtækjafréttir

Reginn hf.: Samkomulag um kaup á fasteignafélaginu FM-hús ehf.

Þann 17. nóvember 2016 var undirritað samkomulag á milli Regins hf. (Reginn), Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS) og eigenda fasteignafélagsins FM-hús ehf. (hér eftir „FM-hús“ og „félagið“) um kaup Regins og VÍS á 63,0% hlutafjár í FM-húsum. Eignarhlutur Regins í félaginu verður 47,0% og VÍS mun eignast 16,0% Samkomulagið er með fyrirvörum m.a um áreiðanleikakönnun,  samþykki Samkeppniseftirlitsins o.fl.

Fyrirhuguð kaup á FM-húsum miðast við að heildarvirði (EV) eignasafns félagsins sé 3.750 m.kr. Gert er ráð fyrir að félagið verði nánast skuldlaust við kaupin. Nýir hluthafar í félaginu munu greiða fyrir eignarhluti sína með reiðufé. Arðsemi viðskiptanna (e. yield) er um 7%.

Tilgangur viðskiptanna er að kaupa gott og arðbært eignasafn sem mun að ákveðnum tíma liðnum verða alfarið í eigu Regins. Kaupin eru í samræmi við fjárfestingarstefnu félagsins og þá sýn að fjölga samstarfsverkefnum þar sem einkaaðilar og opinberir aðilar vinna saman að uppbyggingu og rekstri verkefna.

FM-hús er gamalgróið og fjárhagslega sterkt fasteignafélag. Félagið er einkar áhugaverður fjárfestingarkostur m.t.t. leigusamninga, gæða eigna og leigutaka. Fasteignasafnið samanstendur af 5 fasteignum og heildarfermetrafjöldi þeirra er um 10.500 fermetrar. Um er að ræða skólabyggingar að Vesturbrú 7 í Garðabæ, Kríuási 1, Kríuási 2 og Tjarnabraut 30 í Hafnarfirði auk skrifstofu- og atvinnuhúsnæðis að Bæjarhrauni 8 í Hafnarfirði. Útleiguhlutfall fasteignanna er 100%. Leigutakar eru 9 og standa opinberir aðilar, Hafnarfjarðarbær og Garðabær á bak við 90% af leigutekjum fasteignasafnsins og er meðaltími leigusamninga um 10 ár. Í hluta eignanna sinnir leigusali stoðþjónustu sem veitt er leigutaka s.s. ræstingu og þrif á húsnæði, öryggisgæslu, umsjón húsnæðis, lóðar o.fl.

Með fjárfestingu þessari skapast tækifæri til að nýta styrk og getu félagsins til frekari vaxtar. Núverandi og væntanlegir hluthafar FM-húsa telja að eignasamsetning, fjárhagslegur styrkur og fjárhagsskipan félagsins henti vel til frekari fjárfestinga og uppbyggingar á kjarnasviði félagsins. Fyrirhugað er að ráðast strax í frekari fjárfestingar gangi kaupin eftir. Áætlað er að heildarvirði (EV) eignasafns félagsins geti orðið allt að 12 - 15 ma.kr. í lok fjárfestingatímabilsins.

Áætlað er að innan 12 – 18 mánaða eða við lok fjárfestingatímabilsins muni félagið renna inn í samstæðu Regins með kaupum þess á öllu hlutafé FM-húsa.  Fyrirhugað er að endanlegt hluthafasamkomulag milli hluthafa í FM húsum, sem verði undirritað samhliða kaupsamningi, innihaldi ákvæði um að Reginn eigi kauprétt að hlutum annarra hluthafa í félaginu næstu 18 mánuði eftir undirritun kaupsamnings. Ef til slíkra kaupa kemur mun Reginn jafnframt hafa möguleika á að afhenda hlutafé í Reginn sem greiðslu í slíkum viðskiptum.  Slíkt er þó háð samþykki hluthafafundar Regins.

Eftir viðskiptin verða hluthafar FM-húsa, auk Regins og VÍS, Benedikt Rúnar Steingrímsson (18,5%), Magnús Jóhannsson (14,8%) og Særún Garðarsdóttir (3,7%).

Ráðgjafi Regins í viðskiptunum er Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans.

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262