Icelandic
Birt: 2016-11-11 16:10:51 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Reitir selja eignarhluti sína í Skeifunni 11

Reitir hafa undirritað tilboð um sölu á öllum eignarhlutum félagsins í Skeifunni 11 í Reykjavík, samtals um 1.691 fm., til Fannar-þvottaþjónustunnar ehf. Söluverð fasteignanna er 565 milljónir kr. og greiðist með reiðufé. Salan mun ekki hafa áhrif á áætlaðan rekstrarhagnað Reita þar sem eignirnar hafa ekki verið í útleigu síðan í júlí 2014, en þær skemmdust þá í bruna.

Afhending eignanna mun fara fram þegar fyrirvörum vegna viðskiptanna hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um samþykki stjórnar seljanda, niðurstöður ástandsskoðunar og að ekkert komi í ljós sem komi í veg fyrir endurbyggingu fasteignanna en samþykktir aðaluppdrættir fyrir endurbyggingu þeirra liggja fyrir. Miðað er við að afhending verði í lok desember 2016.

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660 3320 og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416.