Icelandic
Birt: 2016-11-08 17:19:50 CET
Eik fasteignafélag hf.
Reikningsskil

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu níu mánuði ársins 2016

  • Rekstrartekjur tímabilsins námu  4.981 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 3.354 m.kr.
  • Heildarhagnaður tímabilsins nam 2.391 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 2.199 m.kr. á tímabilinu.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 70.804 m.kr. og bókfært virði eigin eigna nam 3.729 m.kr. í lok tímabilsins.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna nam 1.673 m.kr. á tímabilinu.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 47.373 m.kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall nam 31,9%.
  • Hagnaður á hlut var 0,69 kr.

Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2016 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 8. nóvember 2016.

Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning fyrstu níu mánuði ársins ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins er fram koma í tilkynningunni.

Rekstur félagsins

Rekstur félagsins var traustur og stöðugur fyrstu níu mánuði ársins. Rekstrartekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 námu 4.981 m.kr og aukast um 14,0% á milli ára. Þar af voru leigutekjur 4.191 m.kr. og tekjur vegna hótelrekstrar 513 m.kr. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 3.354 m.kr. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 2.989 m.kr. og heildarhagnaður tímabilsins nam 2.391 m.kr.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, afskriftir og einskiptisliði sem hlutfall af leigutekjum) nam 76,3% á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 samanborið við 76,6% fyrstu níu mánuði ársins 2015.

Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er m.a. við núvirt framtíðarsjóðstreymi einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu fjárfestingareigna sem nam á tímabilinu 1.673 m.kr.

Efnahagur félagsins

Heildareignir félagsins námu 78.577 m.kr. þann 30. september 2016, þar af námu fjárfestingareignir 70.804 m.kr. og eignir til eigin nota 3.729 m.kr. Pósthússtræti 2 (Hótel 1919) er fært sem eigin eign þar sem í fasteigninni er annar rekstur en útleiga fasteigna og er reksturinn í eigu eins dótturfélags Eikar.  Eigið fé félagsins nam 25.112 m.kr. í lok september 2016 og var eiginfjárhlutfall 31,9%. Heildarskuldir félagsins námu 53.463 m.kr. þann 30. september 2016, þar af voru vaxtaberandi skuldir 47.373 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 4.872 m.kr. 

Arðgreiðslustefna

Félagið greiddi 818 m.kr. til hluthafa þann 25. maí s.l. enda er það stefna stjórnar að greiða 35% af handbæru fé frá rekstri hvers árs í arð til hluthafa. Handbært fé frá rekstri fyrstu níu mánuði ársins nam 2.199 m.kr.

Virðisútleiguhlutfall

Mikil eftirspurn hefur verið eftir atvinnuhúsnæði Eikar frá áramótum. Í lok júní 2016 var virðisútleiguhlutfall félagsins 95,1% og hafði þá hækkað um 1,3% frá áramótum. Ef horft var til eigna í þróun var virðisútleiguhlutfallið komið í 96,3%.

Fjármögnun

Gefin var út nýr skuldabréfaflokkur í apríl 2016, EIK 100346,m að fjárhæð 2.000 m.kr. til 30 ára sem ber 3,6% verðtryggða vexti. Flokkurinn var stækkaður um 3.500 m.kr. í september og er stærð flokksins nú 5.500 m.kr.

Félagið greiddi upp tvö verðtryggð lán sem það yfirtók samhliða kaupum á Heimshótelum og Síðumúla 1. Þá hefur félagið tryggt fulla fjármögnun á framkvæmdum við Suðurlandsbraut 8 og 10 ásamt því að hafa samið um veltifjármögnunarlán til 5 ára.

Eignasafn félagsins

Eik fasteignafélag hf. sinnir rekstri og útleigu á atvinnuhúsnæði. Fjöldi eigna félagsins er yfir 100 og telja þær samtals yfir 284 þúsund útleigufermetra. Virði fasteigna félagsins er u.þ.b. 75 ma.kr. og heildarfjöldi leigutaka er yfir 400. Helstu eignir félagsins eru Borgartún 21 og 26, Pósthússtræti 2, Nýi Glæsibær, Turninn í Kópavogi, Smáratorg og Austurstræti 5,6,7 og 17. Stærstu leigutakar eru Fasteignir ríkissjóðs, Fjarskipti (Vodafone), Húsasmiðjan, Landsbankinn, Rúmfatalagerinn, Síminn, Deloitte og VÍS.

Stærsti hluti fasteignasafns Eikar er skrifstofuhúsnæði eða 48%. Næst koma verslunarhúsnæði 28%, lagerhúsnæði 9%, hótel 8% og veitingahúsnæði 4%. Um 90% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 39% á fjármála - og viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108) og 18% í miðbæ Reykjavíkur. 10% eignasafnsins eru á landsbyggðinni, þar af rúm 8% á Akureyri.

Kynningarfundur

Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 9. nóvember 2016 klukkan 16:00 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2, Reykjavík. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.

Fjárhagsdagatal 2016

  • Afkoma 4F og ársuppgjör 2016                    28. febrúar 2017

Nánari upplýsingar veitir:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200 / 861-3027
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s. 590-2209 / 820-8980

 


3F Arshlutaskyrsla.pdf