English Icelandic
Birt: 2016-11-07 09:56:42 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur október 2016

Í október flutti félagið 321 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 26% fleiri en í október á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 32% og sætanýting var 82,0% samanborið við 83,6% í sama mánuði í fyrra. Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru tæplega 27 þúsund í október og fjölgaði um 7% á milli ára. Framboð félagsins var aukið um 12% samanborið við október 2015. Sætanýting nam 71,1% og lækkaði um 4,1 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 15% á milli ára.  Skýrist það af skammtímaverkefni árið 2015. Fraktflutningar jukust um 3% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 84,2% samanborið við 72,3% í fyrra.

   

MILLILANDAFLUG OKT 16 OKT 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Fjöldi farþega 320.986 253.784 26% 3.225.973 2.696.530 20%
Sætanýting 82,0% 83,6% -1,6 %-stig 82,8% 83,9% -1,1 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 1.196,8 908,3 32% 11.897,5 9.652,0 23%
             
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG OKT 16 OKT 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Fjöldi farþega 26.502 24.758 7% 276.790 256.147 8%
Sætanýting 71,1% 75,2% -4,1 %-stig 70,9% 74,6% -3,7 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 11,7 10,4 12% 150,4 127,9 18%
             
LEIGUFLUG OKT 16 OKT 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 100,0% 0,0 %-stig 100,0% 100,0% 0,0 %-stig
Seldir blokktímar 1.854 2.176 -15% 19.889 19.611 1%
             
FRAKTFLUTNINGAR OKT 16 OKT 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Seldir tonnkm. (FTK´000) 9.494 9.206 3% 89.459 83.183 8%
             
HÓTEL OKT 16 OKT 15 BR. (%) ÁTÞ 16 ÁTÞ 15 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 27.786 24.118 15% 297.507 278.133 7%
Seldar gistinætur 23.406 17.443 34% 247.695 223.481 11%
Herbergjanýting 84,2% 72,3% 11,9 %-stig 83,3% 80,4% 2,9 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010

 

 


Traffic Data - October 2016.pdf