Icelandic
Birt: 2016-11-02 10:26:07 CET
Hagar hf.
Fyrirtækjafréttir

Hagar hf. endurnýja samning um viðskiptavakt með hlutabréf fyrirtækisins.

Hagar hf. hafa endurnýjað samning við Íslandsbanka um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af Högum hf. sem skráð eru á Nasdaq OMX Iceland.  Eldri samningur er frá 2011.  Tilgangur þessa samnings er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Nasdaq OMX Iceland („Kauphöllin“) í því skyni að seljanleiki hlutabréfa félagsins aukist, markaðsverð skapist og verðmyndun hlutabréfanna verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.

Samningurinn kveður á um að Íslandsbanki skuli dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar.

Fjárhæð kaup- og sölutilboða, að nafnvirði, skal vera að lágmarki í samræmi við töflu A þar sem gengi félagsins á markaði stýrir fjárhæð tilboða.

TAFLA A

Gengi Nafnverð
1 - 25 1.000.000
25,1 - 35 800.000
35,1 - 45 600.000
45,1 - 50 500.000
50,1 - 65 400.000
65,1 - 85 300.000
85,1 - 125 200.000
125,1 - 165 150.000
165,1 - 250 100.000

 Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Íslandsbanki tryggir að verðbil milli kaup- og sölutilboða sem sett eru fram í viðskiptavakt nemi að hámarki 1,5% og að frávik þeirra frá síðasta viðskiptaverði sama dags sé ekki meira en 3%. Samningurinn er ótímabundinn og er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.