English Icelandic
Birt: 2016-10-27 20:29:19 CEST
Icelandair Group hf.
Reikningsskil

Mjög góð afkoma á mikilvægasta ársfjórðungnum

  • EBITDA á 3. ársfjórðungi var 161,8 milljónir USD samanborið við 155,6 milljónir USD á sama ársfjórðungi á síðasta ári.
  • 19% fjölgun farþega í millilandaflugi og góð sætanýting.
  • Heildartekjur jukust um 13%.  Aukning tekna á föstu gengi var 17%.
  • Hagnaður eftir skatta var 102,8 milljónir USD á tímabilinu samanborið við 103,1 milljón USD í fyrra.
  • Eiginfjárhlutfall var 49% í lok september.

 

Björgólfur Jóhansson, forstjóri:

„Rekstur félagsins gengur vel og afkoman á þriðja ársfjórðungi, mikilvægasta fjórðungnum hvað afkomu varðar, var mjög góð. EBITDA nam 162 milljónum USD og hagnaður eftir skatta 103 milljónum USD. Mikill vöxtur var í starfseminni og alls flutti félagið tæplega 1,5 milljónir farþega í millilanda- og innanlandsflugi og hefur ekki flutt fleiri farþega á einum ársfjórðungi. Mikil fjölgun ferðamanna til Íslands hefur skilað sér í auknum fjölda erlendra ferðamanna í innanlandsflugi og er áætlað að sú þróun muni halda áfram. Nýting hótela félagsins hefur aldrei verið betri og fraktstarfsemin gengur vel.

Þessi árangur hefur náðst við krefjandi aðstæður og ýmsir ytri þættir í rekstrarumhverfinu hafa ekki verið félaginu hagfelldir. Meðalfargjöld hafa farið lækkandi í millilandastarfseminni í takt við þróunina hjá öðrum flugfélögum. Bókunarstaðan er engu að síður sterk sem fyrr og í takt við áætlanir okkar.

Félagið mun halda áfram að vaxa á næstu misserum. Flugáætlun okkar í millilandaflugi fyrir 2017 er 14% umfangsmeiri en á þessu ári og við gerum ráð fyrir að flytja 4,2 milljónir farþega á árinu. Nýtt hótel verður opnað í miðbæ Reykjavíkur á næsta ári og annað ári síðar. Tvær  breiðþotur bætast í flotann og áframhaldandi fjölgun ferðamanna til Íslands skapar fjölmörg tækifæri fyrir ferðatengda þjónustu. Miklum vexti fylgja fjölmargar áskoranir og starfsfólk félagsins stóð sig frábærlega á þessum annasama tíma. Það eru spennandi tímar framundan hjá félaginu og horfur í rekstri þess eru góðar.“  

 

Vinsamlegast athugið

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 28. október 2016  kl. 8:30 á Hilton Reykjavík Nordica. Athugið að kynningarfundurinn verður EKKI haldinn á Icelandair Hótel Natura eins og vant er.

 

Frekari upplýsingar veita

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455.
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801.

 

 


Frettatilkynning Q32016.pdf
Icelandair Group hf 30 9 2016.pdf